top of page
Um Bláskógaljós

Bláskógaljós, Aratungu - 801 Selfoss

kt. 430519-0340 

Bláskógaljós er fyrirtæki í eigu sveitarfélagsins Bláskógabyggðar sem annast lagningu ljósleiðara í sveitarfélaginu. Bláskógaljós er rekið sem deild innan sveitarfélagsins og því alfarið á ábyrgð þess og hefur sveitarstjórn yfirumsjón með Bláskógaljósi.

Ljósleiðarakerfið er alfarið í eigu sveitarfélagsins.

Inntak hinnar opinberu þjónustu sem Bláskógaljósi er ætlað að framkvæma og veita er að tengja öll heimili, fyrirtæki og sumarhús í sveitarfélaginu, sem svo kjósa og eru ekki þegar tengd, við ljósleiðaranet (FTTH, e. Fiber To The Home) og mun gera öllum íbúum sveitarfélagsins mögulegt að hafa aðgang að háhraða ljósleiðaratengingu. Verkefnið tekur til þess svæðis innan sveitarfélagsins þar sem ljósleiðari hefur ekki þegar verið lagður.

Bláskógaljós er fjármagnað af sveitarfélaginu, þeim tekjum sem af þjónustunni hljótast og með styrk frá íslenska ríkinu.

Áætlanir miðast við að lagningu ljósleiðarakerfis um allt dreifbýli Bláskógabyggðar ljúki á árinu 2020.

bottom of page