top of page
Umsóknir um styrki til uppbygginar árið 2018

Umsóknar- og úthlutunarferli  vegna fyrirhugaðra framkvæmda sveitarfélaga 2018 er langt komið. Þann 23. nóvember 2017 voru opnaðar samtals 102 styrkbeiðnir frá 25 sveitarfélögum. Mat á þeim umsóknum liggur fyrir.

Alls eiga 23 sveitarfélög nú kost á alls 450 m.kr. styrk til þess að tengja um 1.000 lögheimili og vinnustaði með ljósleiðara á næsta ári. Skuldbinding um greiðslu er með fyrirvara um fjárlög og undirritun samnings.

Úthlutun styrkja er skipt upp í A og B hluta. Í fyrstu umferð þ.e. A-hluta eru umsóknir metnar og afstaða tekin til þess hvort að uppbyggingar áform sveitarfélaga séu raunhæf og umbeðin gögn sem fylgja skulu umsóknum fullnægjandi.

Bláskógabyggð skilaði inn gögnum í A-hluta og er eitt af 23 sveitarfélögum sem um ræðir hér að ofan og eitt af sex sveitarfélögum á suðurlandi sem halda rétti til að sækja um styrk skv. B-hluta. Hin fimm sveitarfélögin eru Flóahreppur,  Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Skaftárhreppur og Sveitarfélagið Árborg.

bottom of page